Inspired by Iceland

Drottning um stund

Drottning um stund

-Dekurdagar fyrir konur í hestaferð-   

        
        

“Drottningin” er ferð fyrir nokkuð vanar reiðkonur sem geta setið í hnakk í  5-7 tíma og riðið án erfiðleika bæði tölt og brokk á góðri milliferð eða meira. Við erum að sjálfsögðu með bæði rólega og viljuga hesta þannig að allir geta fundið hesta við sitt hæfi og starfsmenn okkar í ferðinni aðstoða hvern þann sem á þarf að halda.

Dekur í mat og drykk
Dekrað verður við þátttakendur bæði í mat og drykk og er nudd og vín með mat innifalið í verðinu. Gist verður í uppábúnum rúmum. Boðið verður upp á teygjur og nuddari kemur í heimsókn einn daginn.

Reyndur farararstjóri mun ásamt öðru starfsfólki hugsa vel um farþegana og sjá til þess að allir fari endurnærðir og glaðir heim.

Innifalið: 
Hestar, reiðtygi, gallar, hjálmar, hnakktöskur, gisting í 2 – 4 manna herbergjum í uppábúnum rúmum. Fullt fæði, frá hressingu 1.daginn til og með síðdegiskaffis á 4. degi. Einnig léttvín með mat, nudd og algjört dekur að hætti Íshesta !

Allar nánari upplýsingar um fyrirhugaðar ferðir ofl. hjá Íshestum í síma 555 7005 (Gitta) eða gitta@ishestar.is




Leita að ferð

Frásagnir

The best thing with Íshestar is the large selection of tours they offer all over the country and yet every tour is run by a local farmer and his family, that know the land like the back of their hands. This is Eco-tourism at it´s best!
Isabelle Martin, Lyon France