Dagskrá:
IH08 - Egilsstaðir
Dagskrá:
Mánudagur: Skriðuklaustur - Fjallaskarð
Mæting á Skriðuklaustri þar sem við kynnumst starfsfólkinu og hestunum. Ferðin sem hefst rétt yfir sjávarmáli leiðir okkur þennan daginn inn á hálendi austulands sem er í um 500 m yfir sjávarmáli. Við gistum í fjallakofanum Fjallaskarði þessa nóttina. (40km)
Þriðjudagur: Fjallaskarð – Aðalból
Við ríðum frá Fjallaskarði að Aðalbóli. Við skiljum hjörðina eftir og ríðum í gegnum Hrafnkelsdal á söguslóðir Hrafnkelssögu. Við ríðum að Faxafossi sem er nefndur eftir frægasta hesti Íslandssögunnar. (30km)
Miðvikudagur: Aðalból – Hafrahvammagljúfur – Fjallakofi Sauðá
Við munum ríða að Hafrahvammagljúfri þar sem þröngt og bratt gljúfrið er ógleymanlega sjón.
Ferðin mun leiða okkur að Vestur-Öræfum og yfir að fjallakofanum við Sauðá sem er um 5km fjarlægð norður af Vatnajökli (45km).
Fimmtudagur: Sauðá – Snæfell – Fjallakofinn Laugarfell
Í dag munum við ríða í augsýn við hið mikilfenglega Snæfell. Við ríðum í fallegu landslaginu ásamt þess að sjá mismundi sjónarhorn Snæfellsins. Í fjallakofanum á Laugarfelli munum við gista í tvær nætur og njóta þar náttúrudýrðar ásamt því að slaka á í heitum pottum eftir tveggja daga reiðtúr (35k
m).
Friday: Laugarfell – Sanddalur – Laugarfell
Um morguninn breytum við til og keyrum á jeppum upp Vatnajökul. Við sjáum endalausar ísbreiðurnar og upplifum hrikaleika jökulsins. Í dag ríðum við í gegnum Sanddal að grænum högum í útjaðri Eyjabakka. Við eyðum nóttinni í Fjallakofanum á Laugarfelli (30km).
Laugardagur: Laugarfell – Skriðuklaustur – Félagsheimilið Végarður
Í dag ríðum við að Norðurdal og sjáum fossana í Jökulsá í Fljótsdal. Reiðdagurinn endar á bænum Skriðuklaustri þar sem við kveðjum hestana. Við gistum nóttina í félagsheimilinu Végarði (35km).
Sunnudagur: Végarður – Egilsstaðir - Reykjavík
Heimferð á eigin vegum.