Dagskrá:
IH19 - Landmannalaugar
Dagskrá:
Þriðjudagur: Kálfhóll– Fossnes
Mæting á eigin vegum á Kálfhól þar sem ferðin hefst. Við ríðum á mjúkum stígum upp með Þjórsá í átt að Fossnesi þar sem við gistum fyrstu nóttina. Í Fossnesi er heitur pottur þar sem gott er að láta þreytuna líða úr sér eftir ánægjulegan dag. (38 km)
Miðvikudagur: Fossnes – Hólaskógur
Nú færum við okkur ofar í landið þar sem askan úr Heklu fer að verða meira og meira áberandi. Við förum um Gjána, fram hjá Hjálparfossi og áfram í Hólaskóg þar sem við gistum. Í Hólaskógi er frábær aðstaða og þar er hægt að fara í sauna. (35 km)
Fimmtudagur: Hólaskógur - Landmannahellir
Nú förum við yfir Þjórsá (á brú) og höldum sem leið liggur um Heklusanda í Landmannahelli. Þar gistum við 2 nætur. Í Landmannahelli er sturta. (40 km)
Föstudagur: Landmannahellir – Landmannalaugar - Landmannahellir
Í dag förum við ríðandi inn í Landmannalaugar þar sem við eyðum deginum í að skoða okkur um þetta einstaka og fallega landslag og baðað okkur í náttúrulegum heitum potti. Við ríðum svo aftur til baka í Landmannahelli þar sem við gistum seinni nóttina. (40 km)
Laugardagur: Landmannahellir - Klettur
Frá Landmannahelli höldum við áfram norður með Valafelli, þar sem m.a. má sjá allt austur til Vatnajökuls. Við förum aftur yfir Þjórsá ( á brú ) og höldum í átt að Kletti þar sem við gistum eina nótt. (55 km)
Sunnudagur: Klettur - Fossnes
Nú byrjum við á að ríða niður að bænum Fossnesi þar sem við skilum hestunum. Við keyrum að Kálfhóli og fáum okkur hressingu áður en við skellum okkur í sund í Brautarholti. Heimferð á eigin vegum. (32 km)
Leita að ferð
Frásagnir
Dear Ishestar Staff, we are just writing to say thank you very much for the Lava Tour session that we came to on December 6th. Although I had very little riding experience before, the staff was very kind and the horses were very patient and docile, and Tom and I both enjoyed the tour a great deal. Please say hello and thank you to the horses we rode, “Strákur” and “Orri”, when you next see them. Best Wishes and Happy Christmas, Helen and Tom
Helen and Tom Firth, Surrey England