Inspired by Iceland

Dagskrá:

Dagskrá:

IH03 - Mývatn

Dagskrá:

Mánudagur: Saltvík
Mæting í Saltvík, þar sem við hittum starfsfólk og hesta. Við byrjum á því að ríða frá Saltvík, upp á Hvammsheiði að Reykjahverfi. Við gistum í Saltvík fyrstu nóttina. Eftir matinn getum við  slakað á í heitum potti og notið útsýnis um sveitina (20 km).

Þriðjudagur: Heiðabær - Þeistareykir
Á öðrum degi byrjum við á því að ríða um Geldingadal og yfir á Reykjaheiði þaðan sem við höldum áfram til Þeistareykir. Við gistum í fjallaskálanum um nóttina (40 km)

Miðvikudagur: Þeistareykir – Jarðböð – Hraunbrún
Frá Þeistareykjum ríðum við upp í Gæsafjöll og að Hrafnabjörgum, þar er útsýnið yfir Mývatn stórfenglegt. Við ríðum niður að Hraumbrú rétt við Mývatan þar sem við gistum. (40 km).

Fimmtudagur: Laxárdalur – Reykjahverfi – Saltvík
Þennan dag byrjum við á að fara í útsýnisferð á bíl um nágrennið, við heimsækjum Dimmuborgir og Hverarönd og skoðum hverina þar. Frá Hraunbrún ríðum við Laxárdalinn meðfram Laxá og yfir að Saltvík. (40 km)

Föstudagur: Reykjahverfi – Saltvík
Núna ríðum við yfir Laxá og meðfram henni um tíma. Við höldum upp á Hvammsheiði, komum við á Æðarfossum og förum meðfram ströndinni og höldum  svo aftur heim að Saltvík þar sem við gistum (30 km).

Valfrjálst - Hvalaskoðun:
Hér býðst þátttakendum að fara í hvalaskoðun frá Húsavík ( ekki innifalið í verði ferðarinnar )

Laugardagur: Saltvík
Þátttakendur halda nú heim á leið, heimferð á eigin vegum.

 

Leita að ferð

Frásagnir

We have been riding with Íshestar every sommer for the past 6 years. We really appreciate the big selection of tours that Íshestar offers and every year they come up with something new and exciting for us to try. The fact that all tours run by local farmers makes this so unique and we have our favourite horses all over Iceland!
James and Anne Baldwin, Ipswich England