Skagafjörður
Dagskrá:
Þriðjudagur: Gilhagi – Þorljótsstaðir
Mæting á bæinn Gilhaga í Öxnardal Skagafirði þar sem gist verður fyrstu nóttina. Þar hittum við starfsfólkið og hestana. Við byrjum á að ríða um Skagafjörðinn að eyðibýlinu Þorljótsstaðir. Hestarnir verða eftir þar og keyrum við til baka að Gilhaga.(25 km)
Miðvikudagur: Þorljótsstaðir – Fjallakofinn Laugafell
Þessi spennandi dagur mun leiða okkur að Hofsjökli. Við fylgjum gömlu Sprengisandsleiðinni, leið sem Íslendingar fóru allt frá landnámi. Ef það verður heiðskýrt munum við sjá þrjá stærstu jökla landsins; Langjökul, Hofsjökul og Vatnajökul. Við gistum um nóttina í fjallaskálanum Laugafell sem er staðsettur mitt á milli Hofsjökuls og Vatnajökuls. Þar getum við baðað okkur upp úr heitri hveralaug sem er fyrir utan skálann.
Fimmtudagur: Laugafell – Kirkjan á Árbæ – Skatastaðir
Þetta er lengsti reiðdagurinn. Við munum ríða gegnum Hörknárdal og inn að Austurdal og meðfram Jökulsá-Eystri að Kirkjunni Árbær. Að þessari merku kirkju er ekki hægt að komast að nema fótgangandi eða á hestbaki. Við endum daginn á bænum Skatastöðum þar sem við gistum um nóttina. (50km)
Föstudagur: Skatastaðir – Merkigil – Egilsá
Í dag ríðum við í gegnum Merkigilsgljúfur og njótum fallegrar náttúru Skagafjarðarins. Við ríðum fram hjá bæjum sem í dag eru eyðibíli á leið okkar til bæjarins Egilsá þar sem við gistum þá nóttina. (25km)
Laugardagur: Egilsá – Vindheimamelar – Lauftún
Þennan seinasta dag með Héraðsvötnin í nálægð ríðum við norður gegnum Bólstaðarhlíðina. Þaðan að Vindheimamelum þar sem Landsmót hestamanna fer oft fram. Við munum enda í nálægum heita potti og láta líða úr okkur eftir dásamlega ferð áður en við borðum seinustu máltíðina að hætti Önnu Lísu. (35km)
Sunnudagur: Lauftún – Reykjavík
Heimferð á eigin vegum.
Leita að ferð
Frásagnir
We took this tour in 2009 and enjoyed it very much. It is the right length and pace, with fantastic horses, astounding scenery, comfortable accommodation, good guide a great opportunity to meet people from different nations. We´l1 be back again!
Riders from UK - Beach Ride Adventure / June 9-12 2011