Dagskrá:
IH05 - Snæfellsnes
Dagskrá:
Sunnudagur: Stóri-Kálfalækur - Grímsstaðir
Sunnudagur: Stóri-Kálfalækur - Grímsstaðir
Hestar og starfsfólk bíða okkar á Stóra-Kálfalæk. Við hefjum ferðina með því að ríða til fjalla eftir góðum reiðleiðum um frjósamar sveitir í átt til Grímsstaða. Gist er heima á Stóra-Kálfalæk. (30 km)
Mánudagur: Grímsstaðir - Hítarhólmur
Reiðleiðin í dag liggur yfir litrík fjöll og meðfram lágum og gróðurvöxnum hlíðum. Við ríðum inn í Hítardal þar sem við fáum að heyra jarðfræðisögu svæðisins. Hraunbreiður, mjúkar reiðleiðir yfir ösku og fjöll gera upplifunina einstaka. Aftur er gist á Stóra-Kálfalæk. (30 km)
Þriðjudagur: Hítarhólmur-Kolviðarnes-Lindartunga
Við höldum leið okkar áfram yfir dulmagnaðar hraunbreiður. Við komum að Hítardalsrétt og heilsum upp á tröllkerlinguna Hít. Við höldum í vesturátt yfir Hítará og ferðumst á slóðum Grettis Ásmundarsonar. Við geymum hestana í Kolviðarnesi og gistum í Laugagerðisskóla þar sem okkur gefst kostur á að fara í sund. (45 km)
Miðvikudagur: Laugagerði - Traðir - Hof
Við sækjum hestana og höldum síðan á Löngufjörur þar sem við hefjum strandreiðina. Snæfellsjökull er í augnsýn. Hestar og knapar gleðjast saman yfir skemmtilegri reiðleið sem ræðst af flóði og fjöru. (40 km)
• Valmöguleiki (gegn aukagjaldi):
Skoðunarferð í Arnastapa og Hellnar. Við heimsækjum upplýsingamiðstöðina í Þjóðgarðinum Snæfellsnes og lærum um dulúðlega krafta þess. Við skoðum stórfengleg fuglabjörg, sem mótuð hafa af brimi og stórsjóum. Við heyrum um Bárð Snæfellsás og frásagnir af þjóðþekktum sögupersónum eins og Guðríði Þorbjarnadóttur. (Verð: 3.500 kr.)
Fimmtudagur: Hof - Traðir - Kolviðarnes - Stóri-Kálfalækur
Annar dagur á ströndinni. Við breytum um stefnu og ríðum nú í átt að Elborgarhrauni. Næturstaður okkar er Stóri-Kálfalækur. (40 km)
Föstudagur: Kolviðarnes - Stóri Kálfalækur
Síðasti dagurinn - gylltir sandarnir breytast í svarta þegar við nálgumst Elborgarhraun. Gist síðustu nóttina á Stóra-Kálfalæk. (30 km)
Laugardagur: Stóri-Kálfalækur
Heimferð á eigin vegum.