Inspired by Iceland

Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar

Algengar spurningar og nauðsynlegar upplýsingar fyrir dagsferðir og Hestamiðstöðina í Hafnarfirði

Hvað er innifalið?

Allur búnaður varðandi hestinn, reiðhjálmur, gúmmístígvél, regngalli eða kuldagalli (fer eftir árstíð), ath. að við bjóðum ekki upp á stígvél, regngalla eða kuldagalla í barnastærðum. Leiðsögumenn eru alltaf með í ferðum okkar (ekki er hægt að leigja hest án leiðsagnar).

Mikilvægt er að skoða hverja leiðarlýsingu fyrir sig til að sjá hvað er innifalið í hverri ferð.

Hversu ung börn mega koma á hestbak?
Börn yngri en 8 ára mega ekki taka þátt í okkar reglulegu ferðum (fyrir utan ferð nr. 45) nema þau hafi sérstaklega mikla reynslu af útreiðum. Við bjóðum upp á námskeið fyrir börn frá 6 ára aldri. Við bjóðum upp á teymingar fyrir yngri börn og allir eru velkomnir á opnunartíma Hestamiðstöðvarinnar til að sjá og hitta hestana, þeim finnst líka voðalega gott að fá smá klapp. Heimsókn í Hestamiðstöðina kostar ekkert.

Hversu hratt er farið í ferðunum?
Við byrjum allar ferðir á feti. Það er til að hita hestana upp og einnig fyrir leiðsögumenn okkar að fylgjast með öllum farþegum og fullvissa sig um að allir sitji rétt og séu tilbúnir að auka hraðann. Það er mismunandi hversu hratt við förum í ferðunum. Rólegasta ferðin er ferð nr. 1 (Hraunsæla) þar sem að mestu leyti er farið á feti, við reynum yfirleitt að fara aðeins hraðar en það fer algjörlega eftir hópnum hverju sinni hvort farið sé hraðar en fetið í þeirri ferð. Í Hraunferðinni okkar (ferð nr. 2) aukum við hraðann smá saman og prófum að fara upp á bæði brokk og tölt, oft skiptum við hópnum í þeirri ferð í tvennt (hraðari og hægari hópur). Í Víkingaferðinni (ferð nr. 5) og Víkingahraðferðinni (ferð nr. 3) förum við fyrr að auka hraðann og erum lengur í einu á tölti og/eða brokki. Við notum yfirleitt ekki stökk eða skeið í okkar ferðum.

Mikilvægt er að kynna sér vel ferðaskilmála okkar varðandi, greiðslu, afbókun og afsláttarkjör.


Nauðsynlegar upplýsingar fyrir lengri ferðir

Hvað er innifalið?
Ferðir fyrir Íslendinga hefjast ýmist á sveitabænum, á Akureyri eða á Egilsstöðum. Venjulega eru akstur og flug ekki innifalin fyrir Íslendinga nema annars sé tekið fram. Íslendingum býðst hins vegar kostur að kaupa akstur eða flug á góðu verði hjá Íshestum sé þess óskað.

Meðan á ferðinni stendur yfir er fullt fæði í boði. Matseðill okkar samanstendur af vel útilátnum morgunverði og hefðbundnum íslenskum heimilismat (fiskur eða lambakjöt). Hægt er að biðja um grænmetisrétti, ef slíkt er nefnt með fyrirvara t.d. um leið og ferð er bókuð. Þátttakendur útbúa sér svo nestispakka af morgunverðarborði okkar, sem þeir taka með sér í ferðina. Drykkjarföng eins og bjór, léttvín eða sterk vín eru ekki innifalin í verði ferðanna og ekki svo auðvelt að nálgast uppi á fjöllum! Í Drottningarferðinni er léttvín með matnum innifalinn

Fólk fær útvegað regnföt, hnakktöskur, reiðhjálma og svefnpoka (þegar þess þarf).

Farangur
Farangurinn verður fluttur með eldhúsbílnum
Komið frekar með bakpoka heldur en ferðatöskur
Pakkið niður létt vegna takmörkunar á plássi .

Hvað á að taka með sér mikið af reiðufé.
Íshestar bjóða í nokkrum ferðum sínum upp á útsýninsferðir eða ýmiskonar afþreyingu sem valkost. Þetta er nefnt í leiðarlýsingu hverja ferðar fyrir sig ásamt upplýsingum um verð. Þessar ferðir eru greiddar á staðnum og er krafist staðgreiðslu.

Hópastærð
Fjöldi farþega í ferðum okkar eru frá 12 upp í 20 gesti. Vinsamlegast athugið hámarksfjöldann í hverri ferð fyrir sig á leiðarlýsingunni. Starfsfólkið okkar samanstendur af farastjóra, aðstoðarmönnum sem stjórna hestunum auk annarra sem sjá um hesta og matreiðslu.

Skipta um hesta
Venjulega skiptum við um hesta tvisvar á dag. Í flestum af okkar lengri ferðum er frjáls hjörð sem fylgir okkur, sem er hin hefðbundna venja þegar riðið er um Ísland. Þetta á við um lengri ferðirnar hjá okkur. Í ferðum sem eru ekki eins erfiðar mun farastjórinn leiða auka hesta hluta af ferðinni.

Neyðarnúmer
Vegna öryggisráðstafana höfum við neyðarnúmer sem hægt er að hringja í hvenær sem er. +354 860 7006.

Við mælum með því að farþegar séu ferðatryggðir í ferðum okkar.

Staðfestingargjald
Greiða ber 30% staðfestingargjald við bókun ferðar. Eftir greiðslu staðfestingargjalds er sæti tryggt.. Eftirstöðvar greiðslu skulu greiðast fjórum vikum fyrir brottför viðkomandi ferðar.

Afbókunarskilyrði okkar eru sem hér segir:
• Forfallagjald vegna afbókunar sem gerð er (bréfleiðis, með faxi eða tölvupósti) með meira en sex vikna fyrirvara er 10% af verði ferðarinnar.
• Forfallagjald vegna afbókunar sem gerð er (bréfleiðis, með faxi eða tölvupósti) með minna en sex vikna fyrirvara er 30% af verði ferðarinnar.
• Forfallagjald vegna afbókunar sem gerð er (bréfleiðis, með faxi eða tölvupósti) með minna en þriggja vikna fyrirvara er 50% af verði ferðarinnar.
• Forfallagjald vegna afbókunar sem gerð er (bréfleiðis, með faxi eða tölvupósti) með minna en viku fyrirvara er 100% af verði ferðarinnar.

Íshestar áskilja sér þann rétt að breyta dagleiðum vegna veðurs eða ófærðar

Ef fella þarf niður ferð (brottför) vegna ónógrar þátttöku, ber Íshestum að tilkynna það með a.m.k. 4 vikna fyrirvara og bjóða viðskiptavinum sínum sambærilega ferð án auka kostnaðar fyrir viðkomandi. Full endurgreiðsla kemur til sætti viðskiptavinir sig ekki við þá úrlausn mála. Taka má fram hér, að niðurfelling ferða er afar sjaldgæft fyrirbæri.

Leita að ferð

Frásagnir

We took this tour in 2009 and enjoyed it very much. It is the right length and pace, with fantastic horses, astounding scenery, comfortable accommodation, good guide a great opportunity to meet people from different nations. We´l1 be back again!
Riders from UK - Beach Ride Adventure / June 9-12 2011