Inspired by Iceland

Nauðsynlegur útbúnaður

Nauðsynlegur útbúnaður

Nauðsynlegur útbúnaður í langar ferðir

Oft er erfitt að velja sér föt sem henta vel í ferðalagið. Ósjaldan tekur fólk of mikið með sér og gleymir jafnvel ýmsu nauðsynlegu. Til þess að auðvelda fólki leikinn höfum við tekið saman lítinn lista yfir það helsta sem okkur dettur í hug. Auðvitað er hann ekki tæmandi og fólk hefur ólíkar þarfir. 

  • Góð gúmmístígvél (há) – reiðstígvél alls ekki nauðsynleg 
  • Reiðbuxur og hlýr jakki eða úlpa
  • Ullarpeysa eða flíspeysa 
  • Nóg af sokkum og ullarhosum 
  • Hanskar, trefill, eyrnaband eða húfa 
  • Hlý nærföt – síðar nærbuxur mjög góðar 
  • Flugnanet til að setja yfir reiðhjálminn (fæst í veiðibúðum) 
  • Sundföt, handklæði, sápa og snyrtivörur 
  • Íþróttagalli (í fjallakofunum) 
  • Inniskór 
  • Lítill koddi (í fjallaferðum) 
  • Lítil myndavél – kíkir 
  • Plástrar og græðandi áburður 
  • Alltaf er gott að hafa með sér súkkulaði eða þrúgusykur 
  • Sólarolía – sólin er sterk inni á hálendinu og margir hafa brunnið illa í ferðunum.

Hjá Íshestum færðu regnföt, reiðhjálm, svefnpoka (þegar þarf) og hnakktösku. 

Leita að ferð

Frásagnir

We are four friends that went together on a riding tour with Íshestar last summer. It was a great tour in a fantastic landscape. Our hosts made us feel like members of their family and we will certainly be back.
Angela Kohl, Koblenz Germany