Inspired by Iceland

Smitvarnir

Smitvarnir

Vegna landfræðilegrar einangrunar, strangra reglna um innflutning og allmennrar vitundar almennings um sérstöðu íslenska hestsins hefur tekist að halda öllum alvarlegum smitsjúkdómum bæði frá hestinum og öðrum búfénaði í áratugi. Hestar eru ekki bólusettir á Íslandi og mjög viðkvæmir fyrir utanaðkomandi smitefnum.

Stranglega bannað er að koma með notuð reiðtygi og hestakerrur til Íslands.

Óheimilt er að flytja til landsins notaðan reiðfatnað sem ekki er unnt að þvo eða sótthreinsa á öruggan hátt, t.d. leðurhanska, stígvél, skó, jakka, vaxjakka, frakka og hjálma.

Sótthreinsun á öðrum reiðfatnaði

Notaðan reiðfatnað skal þvo í þvottavél eða þurrhreinsa fyrir komu til landsins, reiðstígvél og skó skal sótthreinsa. Fatnað sem hefur verið notaður í tengslum við önnur dýr skal meðhöndla á sama hátt. Sótthreinsiefni sem er viðurkennt af yfirdýralækni er Virkon S til sótthreinsunnar. Nánari upplýsingar má finna á www.mast.is

Leita að ferð

Frásagnir

We have our own Icelandic horses at home but I wanted to ride the horse in its homeland and experience the Icelandic nature. Many thanks to Íshestar for a great tour and the best horses I have ever ridden. Riding with the herd is a true adventure.
Anna Dahlin, Göteborg Sweden