Lesa frétt
Reiðskólinn í nýjasta tbl. Eiðfaxa
Í nýjasta tölublaði Eiðfaxa má finna myndir og umfjöllun um reiðskóla Íshesta og Sörla en hann hefur algerlega slegið í gegn í sumar. Kennararnir hafa bryddað uppá ýmsum spennandi nýjungum s.s. þrautabraut, tímataka og fleira. Einnig er viðtal við Einar Bollason framkvæmdastjóra Íshesta.