Hestamiðstöð Íshesta
Hestamiðstöð Íshesta er staðsett í stórkostlegu umhverfi rétt utan við Hafnarfjörð á leiðinni inn í Kaldársel. Hér gefast óendanlegir möguleikar á frábærum útreiðar- og göngutúrum.

Við bjóðum velkomna einstaklinga, fjölskyldur, vinahópa, vinnufélaga og aðra sem vilja skemmta sér saman og njóta útivistar í fylgd fagmanna. Fullkomin aðstaða er fyrir umgengni við hrossin og þægileg aðstoð reyndra starfsmanna tryggir ánægju og öryggi gesta.

Allur aðbúnaður er á staðnum; kuldagallar, regnföt, stígvél og hjálmar. Starfsmenn Íshesta aðstoðar farþega við að finna hesta sem hæfa getu þeirra. Öryggi gestanna er alltaf í fyrirrúmi.

Í Hestamiðstöðinnni er starfrækt kaffisala en einnig er boðið upp á súpu og brauð í hádeginu ef pantað er fyrir fram. Einnig er hægt er að verða við séróskum með fyrirvara. Fullbúinn bar er á staðnum. Sannkölluð hestastemmning með söng og gleði.

     




Jósalir
Veitingasalan Jósalir í Hestamiðstöð Íshesta er opin alla daga kl. 8.00 – 17.00. Jósalir eru einnig opnir á kvöldin við sérstök tilefni. Einnig er algengt að einstaklingar og fyrirtæki leigi salinn undir afmæli, fermingar, brúðkaup, jólaskemmtanir, fundi, veislur og fleira.

Barnaafmæli

Það er skemmtileg tilbreyting að halda afmæli í Hestamiðstöðinni. Afmælisveislur er hægt að halda alla daga vikunnar og stendur hver veisla yfir í 2 klst. A.m.k einn fullorðinn þarf að vera með hópnum á meðan á afmælinu stendur. Dagskrá veislunnar er hestaferð eða teyming ef óskað er eftir því. Einnig er boðið upp á ratleiki. Athugið að starfsfólk Íshesta sér um hestaferð / teymingar, ratleik og veitinar en að öðru leyti sjá veislugestir sjálfir um dagskrá á meðan afmælinu stendur.

Verð:
•           Teyming - tveir hringir í gerði: 500 kr. á barn
•           Hestaferð – 30 - 45 mín: 1800 kr. á barn
•           Ratleikur: 1.000 kr. á barn

Hægt er að velja á milli pitsu og ævintýrasúkkulaðiköku. Gos eða svali fylgir með.

Verð:
•           Pizza og meðlæti: 1.390 kr. á barn
•           Ævintýrasúkkulaðikaka og meðlæti: 1.250 kr. á barn
•           Þá er hægt að panta marsipantertu: 1.500 kr. á barn

Nánari upplýsingar í síma 555-7000 og á netfanginu info@ishestar.is


Leiga á sal

Jósalir er veitingastaður með fullbúnum bar. Tveir aðliggjandi salir taka samtals um 140 manns í sæti. Í leigunni er eftirfarandi innifalið:

•           Salur með borðbúnaði
•           Hljóðkerfi
•           Breiðtjald
•           Nettenging
•           Dúkar eru ekki innifaldir, en Hestamiðstöðin getur tekið að sér að panta þá.

Starfsmaður frá Hestamiðstöðinni sér um aðstoð í eldhúsi,
1 starfsmaður fyrir hverja 25 gesti. Aukafólk er samningsatriði en einnig er heimilt er að koma með sitt eigið fólk.

Hægt er að skreyta salinn kvöldið áður gegn aukagreiðslu. Ekki er skylt að kaupa veitingarnar hjá Hestamiðstöðinni en ef fólk óskar eftir því miðast verðið við fjölda gesta.

Nánari upplýsingar í síma 555-7000 og á netfanginu info@ishestar.is 

 

Leita að ferð

Frásagnir

The best thing with Íshestar is the large selection of tours they offer all over the country and yet every tour is run by a local farmer and his family, that know the land like the back of their hands. This is Eco-tourism at it´s best!
Isabelle Martin, Lyon France