|
Reiðþjálfun Íshesta býður upp á marga möguleika.
- Í Reiðskóla Íshesta sjá menntaðir reiðkennarar sjá um alla kennslu á námskeiðum, bæði fyrir börn og fullorðna, byrjendur og vana.
- Í Reiðklúbbnum hittist góður hópur vikulega og ríður út saman undir leiðsögn. Engin sérstök aldurstakmörk í Reiðklúbbnum – þar eru flestir fullorðnir en þó er nokkuð um að fjölskyldur séu saman í klúbbnum.
- Hestur í fóstur er reiðklúbbur fyrir börn sem hittist einu sinni í viku með leiðbeinendum. Mikil áhersla er lögð á að börnin læri hvað felist í því að eiga hest og að hverju þurfi að huga í umhirðu hesta.
Allir finna reiðþjálfun við sitt hæfi hjá Íshestum. Kynnið ykkur nánar þá möguleika sem í boði eru.
|
|