Hestur í fóstur - börn
Hestur í fóstur – Haust 2011
Jólanámskeið 2011
Vegna mikillar eftirspurnar höfum við ákveðið að hafa námskeið í kringum jólin, 19-22 og 27-30 desember frá klukkan 14:30 til 16:30.
Þetta námskeið er í boði fyrir alla, bæði vana og óvana og það verður skipt í hópa eftir getu. Námskeiðið mun kosta 25.600 kr fyrir barn og mikilvægt er að námskeiðið sé greitt að fullu áður en það hefst.
Boðið verður upp á eftirfarandi námskeið eftir áramót:
Sunnudaga kl. 09:30 – 11:30 fyrir byrjendur
Tímabilið er frá 8.1.2012 til 25.3.2012
Sunnudaga kl. 14:30 – 16:30 fyrir framhaldsstig
Tímabilið er frá 8.1.2012 til 25.3.2012
Verð fyrir 12 vikna námskeið er 38.400.
Gott er að hafa samband sem fyrst því námskeiðin eru fljót að fyllast
S: 555-7000, eða netfang: info@ishestar.is)
Hvað er Hestur í fóstur?
Námskeiðið er tilvalið fyrir þau börn sem eiga ekki hest en langar til þess. Börnin fá góða innsýn í hestamennskuna og öðlast skilning á því að hestamennska felst ekki einungis í því að hoppa í hnakkinn og ríða út! Á námskeiðinu er boðið upp á fasta tíma fyrir alla sem vilja kynnast eða halda við reiðmennskunni og hjálpa til við hirðingu hrossanna. Rétt er að taka fram að hér er ekki um að ræða reiðkennslu undir stjórn menntaðs reiðkennara. Þátttakendur fá að sjálfsögðu góða leiðsögn og þaulreynt starfsfólk okkar fylgist með þeim. Athugið að ekki er víst að farið sé á hestbak í hvert skipti þó að yfirleitt sé reynt að fara í reiðtúr. Við tökum tillit til veðurs í þessu samhengi og einnig bryddum við stundum upp á annarri dagskrá (t.d. fáum heimsókn tamningamanns, dýralæknis eða járningamanns svo eitthvað sé nefnt).
Fyrir hverja er Hestur í fóstur?
Börn 8 til 16 ára sem hafa áhuga á hestum, en eru ekki með eigið hross.
Með kveðju,
Starfsfólk Hestamiðstöðvar Íshesta

Leita að ferð
Frásagnir
Takk fyrir mjög góðar móttökur í dag föstudag 13.maí. Ég hef núna þrisvar komið með hóp til ykkar og finnst þið taka mjög fagmannlega á móti hópum, sniðið á þörfum hvers og eins. Kærar þakkir, krakkarnir nutu dagsins
Heiða Lára Eggertsdóttir, Hlíðaskóli