Dagskrá:
Sunnudagur: Fossnes - Gnúpverjahreppur - Fossnes
Mæting í Fossnesi í Gnúpverjahreppur. Á fyrsta reiðdegi er riðið frá Fossnesi um sveitir Gnúpverjahrepps. Fagurt umhverfi og útsýni yfir Þjórsá. (20 km)
Mánudagur: Fossnes - Hvítárdalur - Fossnes
Á öðrum degi er lagt í hann yfir í Hrunamannahrepp, yfir Stóru-Laxá og að Hvítárdal þar sem hrossin eru hvíld yfir nótt. (35 km)
Þriðjudagur: Fossnes - Hvítárdalur - Gullfoss - Geysir
Nú er riðið um hin mikilfenglegu Brúarhlöð að Gullfossi og þaðan að Geysi þar sem gist er í tvær nætur í herberjum með baði. (35 km)
Miðvikudagur: Geysir - Haukadalur - Haukadalsheiði - Geysir
Frá Geysi er riðið um Haukadal og Haukadalsheiði þar sem ótrúleg fjalla- og jöklasýn gleður augað. Þá er hægt að heimsækja Geysisstofu og kynna sér jarðhitasvæðið. (20 km)
Fimmtudagur: Geysir - Tungufellsdalur - Kaldbakur - Fossnes
Við förum aftur yfir Hvítá í Brúarhlöð. Leiðin liggur upp á Hrunaheiði þar sem ríkir sannkölluð hálendisstemmning. Hestarnir verða eftir á Kaldbak en við gistum í Fossnesi. (40 km)
Föstudagur: Fossnes - Kaldbakur - Hrunakrókur - Fossnes
Lokadaginn er svo riðið yfir Stóra-Láxá við Hrunakrók. Við ríðum eftir Laxárdal á leiðinni heim í Fossnes. (30 km) Eftir hressingu er kominn tími til heimferðar.