Um Íshesta

Íshestar sem voru stofnaðir 1982 og hafa ávallt verið í fararbroddi fyrirtækja í hestatengdri ferðaþjónustu. Þegar glæsileg Hestamiðstöð Íshesta í Hafnarfirði var opnuð 2000 var brotið blað í sögu ferðamála hér á landi.

Íshestar hafa ætíð lagt mikla áherslu á umhverfismál. Einar Bollason, framkvæmdastjóri Íshesta, var formaður Umhverfisnefndar Samtaka ferðaþjónustunnar í mörg ár.

Íshestar eru aðilar í Green Globe 21, en það eru alþjóðleg samtök sjálfbærrar ferðaþjónustu. Íshestar voru meðal fyrstu fyrirtækja hér á landi sem settu fram umhverfisstefnu. Fyrir það hlaut fyrirtækið Umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs 2001.

Gæði og persónuleg þjónustu eru ávallt í fyrirrúmi hjá Íshestum og lögð er áhersla á lifandi tengsl við landið.


Hvar erum við staðsett?

Þegar þú kemur inn í Hafnarfjörð eftir Reykjavíkurvegi, heldur þú áfram í átt að Keflavík. Bensínstöðin N1 er þér á hægri hönd og þú heldur áfram og beygir upp á brúna og inn á Kaldárselsveg. Þú keyrir um það bil 2,2 km og kemur að stóru skilti á vinstri hönd þar sem á stendur Íshestar.

Leita að ferð

Frásagnir

Dear Ishestar Staff, we are just writing to say thank you very much for the Lava Tour session that we came to on December 6th. Although I had very little riding experience before, the staff was very kind and the horses were very patient and docile, and Tom and I both enjoyed the tour a great deal. Please say hello and thank you to the horses we rode, “Strákur” and “Orri”, when you next see them. Best Wishes and Happy Christmas, Helen and Tom
Helen and Tom Firth, Surrey England