Saga
Íshestar voru stofnaðir í nóvember 1982. Stofnendur voru Sigrún Ingólfsdóttir, Einar Bollason, Guðmundur Birkir Þorkelsson, Bryndís Guðlaugsdóttir, Árni Björgvinsson og Jenný Sigmundsdóttir. Í sumarloka 1983 drógu Árni og Jenný sig út úr rekstrinum. Þegar Guðmundur Birkir og Bryndís fluttu norður til Húsavíkur árið 1992, keyptu Einar og Sigrún hlut þeirra og breyttu rekstrinum í einkahlutafélag. Þá var allur rekstur lengri ferða settur í hendur verktaka (sam
starfsaðila) en fyrirtækið annaðist sjálft styttri ferðir frá Kópavogi og Hafnarfirði.

Fyrirtækið var í eigu Sigrúnar, Einars og fjölskyldu þar til síðla árs 1998. Þá komu Kynnisferðir inn m
eð viðbótarhlutafé sem var upphafið að byggingu afþreyingarmiðstöðvar í
Hafnarfirði. Hluthafar Íshesta ehf. eru nú auk Kynnisferða, Sigrúnar, Einars og fjölskyldu þeirra, Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, VÍS hf., Ferðaskrifstofa Íslands, Mjólkurfélag Reykjavíkur, Hópbílar og fjöldi einstaklinga. Stjórnarformaður Íshesta er Ásgeir Thoroddsen hrl.
Fyrstu árin var aðsetur fyrirtækisins í Miðdal við Laugarvatn. Áhersla var lögð á rekstur styttri hestaferða í nágrenninu og lengri ferðir yfir Kjöl. Næstu árin var svo nýjum ferðum bætt jafnt og þétt við og brottförum fjölgað. Á undanförnum árum hafa umsvif Íshesta í stuttum ferðum frá höfuðborgarsvæðinu aukist jafnt og þétt og má segja að stóraukin sókn fyrirtækisins á þeim markaði sé hafin.
Íshestar hafa öflug viðskiptasambönd víða um heim. Fyrirtækið hefur getið sér gott orð sem áreiðanleg o

g fagleg ferðaþjónusta. Gerðar eru strangar gæðakröfur og mikil áhersla lögð á góða umgengni um viðkvæma náttúru landsins. Einnig er lögð áhersla á gott samstarf við Náttúruvernd ríkisins og Landgræðslu og farið í einu og öllu eftir ábendingum þeirra um leiðir og landsvæði.
Íshestar hafa verið í fararbroddi ferðaþjónustufyrirtækja í umhverfismálum og gegndi framkvæmdastjóri fyrirtækisins formennsku í Umhverfisnefnd Samtaka ferðaþjónustunnar um áraraðir. Íshestar eru nú aðilar í EarthCheck, alþjóðlegum samtökum um sjálfbæra ferðaþjónustu. Íshestar voru eitt fyrsta fyrirtæki hér á landi sem setti sér umhverfisstefnu og hlaut fyrirtækið Umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs 2001.
Í Hestamiðstöð Íshesta í Hafnarfirði er mikil áhersla lögð á umhverfisvæna starfshætti. Þar er allt sorp flokkað og pappír endurnýttur. Þá var hrossataðið endurnýtt af Gámaþjónustunni í framleiðslu á Moldu og er það nú nýtt til að græða upp hraunið fyrir ofan Hafnarfjörð. Íshestar starfa náið með Skógrækt Hafnarfjarðar og nú er lokið lagningu göngustíga sem tengja svæði Íshesta við Skógræktarsvæðið.
Leita að ferð
Frásagnir
Takk fyrir mjög góðar móttökur í dag föstudag 13.maí. Ég hef núna þrisvar komið með hóp til ykkar og finnst þið taka mjög fagmannlega á móti hópum, sniðið á þörfum hvers og eins. Kærar þakkir, krakkarnir nutu dagsins
Heiða Lára Eggertsdóttir, Hlíðaskóli