Skilmálar
Dagsferðir - greiðsla
Hægt er að panta dagsferðir í gestamóttökum hótela, hjá ferðaskrifstofum, á vef Íshesta eða með því að hafa samband við Hestamiðstöðina:
Sími (+354) 555 7000 kl. 8.00 – 22.00.
Netfang: info@ishestar.is
Vefslóð: www.ishestar.is
Dagsferðir eru greiddar við komuna í Hestamiðstöðina. Ef þér skyldi snúast hugur getur starfsfólk í afgreiðslu Hestamiðstöðvarinnar aðstoðað við að breyta ferðaáætlunum. Afpöntunargjald er alltaf 2.000 kr. á mann.
Reiðnámskeið og reiðklúbbar – greiðsla
Við pöntun reiðnámskeiðs er greitt óafturkræft staðfestingargjald – 5000 kr. - og er þá frátekið sæti á námskeiðið. Verðið greiðist að fullu eigi síðar en viku áður en námskeið hefst. Reiðklúbbskort og önnur afsláttarkort eru greidd að fullu áður en farið er í fyrsta tíma.
Lengri ferðir - greiðsla
Við pöntun ferðar er greitt 30 % af verði ferðar. Þegar sú greiðsla hefur borist er sæti tekið frá í ferðinni. Verðið greiðist að fullu eigi síðar en sex vikum áður en ferðin hefst.
Afbókunararskilmálar okkar í lengri ferðum eru sem hér segir:
- Berist afbókun (bréfleiðis, í faxi eða tölvupósti) eigi síðar en sex vikum áður en ferð hefst, greiðist afbókunargjald sem nemur 10 % af verði ferðarinnar.
- Berist afbókun (bréfleiðis, í faxi eða tölvupósti) síðar en sex vikum en eigi síðar en þremur vikum áður en ferð hefst, greiðist afbókunargjald sem nemur 30 % af verði ferðarinnar.
- Berist afpöntun síðar en þremur vikum áður en eigi síðar en viku áður en ferð hefst, greiðist afpöntungargjald sem nemur 50 % af verði ferðarinnar.
- Berist afpöntun síðar en viku áður en ferð hefst, greiðist ferðin að fullu.
- Sjái Íshestar sig knúna til að aflýsa ferð vegna ónógrar þáttöku, ber að tilkynna viðskiptavini þetta eigi síðar en fjórum vikum áður en ferðin skyldi hafin. Íshestum ber ef þess er kostur að bjóða viðskiptavininum sambærilega ferð án auka kostnaðar fyrir viðskiptavininn. Geri viðskiptavinurinn sér ekki valkostinn að góðu, ber Íshestum að greiða aftur fulla upphæð innborgunar. En þess má geta að til þessa hefur mjög sjaldan komið síðan við hófum starfsemi 1982. Ferðatrygging einstaklinga er ekki innifalin í verði ferðarinnar. Við hvetjum erlenda viðskiptavini okkar til að kaupa sér ferðatryggingu áður en þeir koma til Íslands.
Öryggisreglur
- Börn yngri en 8 ára geta ekki tekið þátt í ferðunum ef starfsfólk okkar metur það svo. Yngri börn geta aðeins tekið þátt í ferð nr. 45.
- Barnshafandi konum er ekki leyfilegt að taka þátt í ferðum okkur vegna hættu sem fóstrinu og móður getur stafað af óhöppum. Ef barnshafandi kona er reyndur reiðmaður og ákveður engu að síður að leggja í langaferð, ber henni að fá samþykki heimilislæknis og Íshestar taka enga ábyrgð á hugsanlegum skaða sem fóstrið getur orðið fyrir. Athugið vel að barnshafandi konum er aldrei heimilt að taka þátt í dagsferðum.
- Ölvuðu fólki og fólki í annarlegu ástandi vegna inntöku lyfja eða fíkniefna er ekki leyft að taka þátt í reiðferðum.
- Allir viðskiptavinir okkar skulu taka þátt í reiðferðunum af frjálsum vilja. Þeim er skylt að greina fararstjóra frá sjúkdómum sem áhrif geta haft á þátttöku þeirra í ferðunum.
- Ef hópnum er skipt í reiðtúrnum ber foreldrunum að vera í sama hópi og börn þeirra (undir 12 ára aldri eða eldri ef þau geta ekki tjáð sig á íslensku eða ensku).
- Bakpoka og ferðatöskur er ekki hægt að taka með í reiðferðir, en verðmæti er hægt að geyma í öryggishólfi í Hestamiðstöðinni eða með farangri sem fluttur er í eldhúsbílnum í lengri ferðum.
Við höfum gert allt sem í okkar valdi stendur til þess að ferðin verði ánægjuleg og áfallalaus. Með öryggi þitt í huga biðjum við þig um að staðfesta eftirfarandi:
- Ég fer í þessa ferð af fúsum og frjálsum vilja.
- Ég tel mig fullfæra/an um að taka þátt í þessari ferð.
- Ég hef kynnt mér leiðbeiningar og öryggisreglur fyrirtækisins og samþykki að fara í einu og öllu eftir þeim.
- Ég er meðvitaður/uð um að þessi ferð getur haft einhverja hættu í för með sér.
- Ég hef tilkynnt fararstjóra um sjúkdóma, sem gætu haft áhrif á hæfi mitt til þess að taka þátt í þessari ferð (t.d. flogaveiki, astma, sykursýki), og lyf sem ég tek við þeim.
- Ég er meðvitaður/uð um að ábyrgð fyrirtækisins nær eingöngu til óhappa sem kunna að verða og rekja má til galla eða rangrar meðferðar búnaðar af hálfu starfsmanna fyrirtækisins og/eða gáleysis þeirra. Ég ber sjálfur ábyrgð á tjóni sem ég veld vegna gáleysis eða vegna þess að ég hef ekki farið að settum reglum.
- Allir persónulegir munir sem ég tek með í þessa ferð eru á minni eigin ábyrgð.
- Ég er ekki undir áhrifum áfengis eða vímuefna.
Ábyrgð
Íshestar áskilja sér rétt ef nauðsyn krefur til þess að breyta leiðum, dagskrá eða tímaáætlun án fyrirvara. Við ábyrgjumst ekki tap eða útgjöld vegna seinkana eða breytinga á komu- og brottfarartíma flugvéla, eða annarrar þjónustu, skemmda, sjúkdóma, slysa, gáleysis, veðurs, stríðsátaka o.þ.h. sem ekki er á valdi Íshesta. Slíkt tap og útgjöld eru á ábyrgð ferðamannsins. Áætluð lengd ferða er ýmist gefin upp í fjarlægðum (km) eða tíma (klst.), en þar geta orðið breytingar vegna vega eða veðurs.
Leita að ferð
Frásagnir
Dear Ishestar Staff, we are just writing to say thank you very much for the Lava Tour session that we came to on December 6th. Although I had very little riding experience before, the staff was very kind and the horses were very patient and docile, and Tom and I both enjoyed the tour a great deal. Please say hello and thank you to the horses we rode, “Strákur” and “Orri”, when you next see them. Best Wishes and Happy Christmas, Helen and Tom
Helen and Tom Firth, Surrey England