Listasmiðja barna með Björk Guðnadóttur

Vegna slæmra veðurskilyrða hefur verið ákveðið að fresta viðburðinum um viku, ný dagsetning er 29. janúar kl. 13:00.
Listasafn Reykjanesbæjar vonar að sem flestir sjái sér fært að mæta en aðgangur er ókeypis.
 
Sunnudaginn 29. janúar kl. 13:00 verður haldin önnur vinnustofan í nýstofnuðum krakkaklúbbi Listasafns Reykjanesbæjar.
 
Björk Guðnadóttir listamaður verður með skemmtilega listasmiðju fyrir börn á öllum aldri.
 
Listasafn Reykjanesbæjar hefur tileinkað rými í anddyri safnsins undir listastarf barna. Vinnustofur krakkaklúbbsins munu halda áfram einu sinni í mánuði fram á vor. Listasmiðjurnar verða fjölbreyttar og kenndar af nýjum listamanni í hvert skipti.
 
Verið velkomin
Aðgangur ókeypis
 
Listasmiðja barna er styrkt af Safnasjóði
 
Björk Guðnadóttir (f. 1969) leitar víða fanga í listsköpun sinni og til þess notar hún ýmiskonar efnivið eins og léreft, ullargarn, plast, gifs og vax. Björk hefur haldið einkasýningar og verið valin til þess að taka þátt í mörgum samsýningum, bæði hér á landi og erlendis. Hún hefur hlotið fjölmarga styrki og verk eftir hana eru í eigu listasafna og safnara. Björk lauk MFA-gráðu frá Listaháskólanum í Umeå, Svíþjóð (Konsthögskolan Umeå universitet) árið 1999, stundaði nám við Listaakademíunni í Osló (Kunstakademiet i Oslo) 1994–1995 og var auk þess skiptinemi við Myndlista- og handíðaskólann 1995–1996. Hún nam einnig myndlist við fornámsdeild Atelier Hourdé Paris, 1993–1994 og klæðskurð við École Superieure de la Mode Paris (ESMOD) 1991–1993. Björk býr og starfar í Reykjavík.