TILEINKUN

„Einhvers staðar inni í massanum sá ég endanlegt formið”

TILEINKUN 
„Einhvers staðar inni í massanum sá ég endanlegt formið”
 
Tileinkun opnar þann 18. nóvember 2023, klukkan 14:00.

Þessi sýning er tileinkuð minningu Valgerðar Guðlaugsdóttur vinkonu okkar og samferðakonu í myndlistinni.
 
Innblástur og hugmyndir geta birst manni í ýmsum myndum og úr ólíkum áttum en hugmyndin að þessari sýningu spratt úr draumi sem einum sýningarstjóra dreymdi um rauða litinn sem Valgerður notaði í fjölda verka sinna. Það má segja að þessi sýning sé ávöxtur þessa draums.
 
Sýningarstjórarnir: Anna Hallin, Olga Bergmann og Guðrún Vera Hjartardóttir.
Þær völdu 8 listamenn á stefnumót við verk Valgerðar og með því vildu sýningarstjórarnir búa til samhengi – tvinna saman ákveðna frásögn og samtal við aðrar sterkar listakonur af ólíkum kynslóðum.

Listakonurnar eru Brák Jónsdóttir, Hildur Henrýsdóttir, Hildur Hákonardóttir, Inga Svala Þórsdóttir, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir, Rakel McMahon, Rósa Sigrún Jónsdóttir og Sigrún Gyða Sveinsdóttir.
 
Tileinkun er styrkt af Safnasjóði og Myndlistarsjóði.
 
Sýningin stendur til og með 13. febrúar 2024.
 
//
 
DEDICATION
"Somewhere inside the mass I saw the final form"
 
This exhibition is dedicated to the memory of Valgerður Guðlaugsdóttir, our friend and fellow artist.

Inspiration and ideas can appear in many forms and come from many directions, but the idea for this exhibition came from a dream that one curator had about the red color which Valgerður used in many of her works. It can be said that this exhibition is the fruit of that dream.

The curators: Anna Hallin, Olga Bergmann and Guðrún Vera Hjartardóttir. They chose 8 artists to show with Valgerður's work and with this the curators wanted to create a context - to weave together a certain narrative and conversations with other strong women artists of different generations.

The artists are Brák Jónsdóttir, Hildur Henrýsdóttir, Hildur Hákonardóttir, Inga Svala Þórsdóttir, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir, Rakel McMahon, Rósa Sigrún Jónsdóttir and Sigrún Gyða Sveinsdóttir.
 
Dedication is sponsored by the Museum Council of Iceland and the Icelandic Visual Arts Fund.
 
The exhibition opens on 11.18.23 and runs until 02.13.24.