TILEINKUN - sýningarstjóraspjall

Sunnudagur, 21. janúar 2024

Sunnudaginn 21. janúar kl. 14:00 verður sýningarstjóraspjall um TILEINKUN - „Einhvers staðar inni í massanum sá ég endanlegt formið”.

Sýningastjórarnir Anna Hallin, Olga Bergmann og Guðrún Vera Hjartardóttir munu leiða gesti um sýninguna sem er tileinkuð minningu Valgerðar Guðlaugsdóttur, vinkonu þeirra og samferðakonu í myndlistinni.

Innblástur og hugmyndir geta birst manni í ýmsum myndum og úr ólíkum áttum en hugmyndin að þessari sýningu spratt úr draumi sem einum sýningarstjóra dreymdi um rauða litinn sem Valgerður notaði í fjölda verka sinna. Það má segja að þessi sýning sé ávöxtur þessa draums.

Sýningarstjórarnir völdu 8 listamenn á stefnumót við verk Valgerðar og með því vildu þær búa til samhengi – tvinna saman ákveðna frásögn og samtal við aðrar sterkar listakonur af ólíkum kynslóðum.

Listakonurnar eru Brák Jónsdóttir, Hildur Henrýsdóttir, Hildur Hákonardóttir, Inga Svala Þórsdóttir, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir, Rakel McMahon, Rósa Sigrún Jónsdóttir og Sigrún Gyða Sveinsdóttir.

Tileinkun er styrkt af Safnasjóði og Myndlistarsjóði.

Sýningin stendur til og með 11. febrúar 2024.

//

Sunday, January 21 at 2 pm, there will be a curator talk about the exhibition DEDICATION "Somewhere inside the mass I saw the final form".

The talk will be in Icelandic, however questions are welcome in English.

The curators Anna Hallin, Olga Bergmann and Guðrún Vera Hjartardóttir will lead guests around the exhibition, which is dedicated to the memory of Valgerður Guðlaugsdóttir, their friend and fellow artist.

The curators chose 8 artists to show with Valgerður's work and with this they wanted to create a context - to weave together a certain narrative and conversations with other strong women artists of different generations.

The artists are Brák Jónsdóttir, Hildur Henrýsdóttir, Hildur Hákonardóttir, Inga Svala Þórsdóttir, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir, Rakel McMahon, Rósa Sigrún Jónsdóttir og Sigrún Gyða Sveinsdóttir.

Dedication is sponsored by the Museum Council of Iceland and the Icelandic Visual Arts Fund.

The exhibition runs until February 11 2024.