TILEINKUN - sýningin kvödd með sýningarstjórum

Þriðjudagur, 13. febrúar 2024

Sýningarstjórarnir Anna Hallin, Olga Bergmann og Guðrún Vera Hjartardóttir verða viðstaddar sýninguna TILEINKUN þriðjudaginn 13. febrúar, kl. 15:00 - 17:00.
 
Þetta er síðasti sýningardagur.
 
Boðið verður upp á léttar veitingar.
 
Aðgangur er ókeypis - Verið velkomin!
 
//
 
The curators for the exhibition DEDICATION, Anna Hallin, Olga Bergmann and Guðrún Vera Hjartardóttir, will be present at Tuesday, February 13, from 3-5 pm.
 
This is the last day of the exhibition
 
Light refreshments will be served.
 
Entrance is free - Everyone is welcome!
 
//
 
TILEINKUN – „Einhvers staðar inni í massanum sá ég endanlegt formið”.
 

Sýningarstjórarnir Anna Hallin, Olga Bergmann og Guðrún Vera Hjartardóttir tileinka sýninguna minningu Valgerðar Guðlaugsdóttur vinkonu þeirra og samferðakonu í myndlistinni.
Innblástur og hugmyndir geta birst manni í ýmsum myndum og úr ólíkum áttum en hugmyndin að þessari sýningu spratt úr draumi sem einum sýningarstjóra dreymdi um rauða litinn sem Valgerður notaði í fjölda verka sinna. Það má segja að þessi sýning sé ávöxtur þessa draums.

 

Sýningarstjórarnir völdu átta listamenn á stefnumót við verk Valgerðar og með því vildu þær búa til samhengi – tvinna saman ákveðna frásögn og samtal við aðrar sterkar listakonur af ólíkum kynslóðum.


Listakonurnar eru Brák Jónsdóttir, Hildur Henrýsdóttir, Hildur Hákonardóttir, Inga Svala Þórdóttir, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir, Rakel McMahon, Rósa Sigrún Jónsdóttir og Sigrún Gyða Sveinsdóttir.

 

Tileinkun er styrkt af Safnasjóði og Myndlistarsjóði.

Sýningin stendur til og með 13. febrúar 2024.

Gallery - TILEINKUN